Ótrúlegt en satt var ég frekar rólegur á föstudagskvöldið en þar sem ég var heima að slaka á sá ég allt í einu gulan miða í bréfalúginni. Á honum stóð:
Til S
Halló, kæri Krulli
Mig hefur alltaf langað til að tala við þig en aldrei þorað því. Ég hef verið skotin í þér síðustu þrjú ár!
Ég þrái þig!
Ég er voðalega feimin, en ég skal tala við þig ef þú segir "Grænn gullfiskur" (á stað eða) ef þú veist að þetta er alveg öruggega [sic] ég.
Ég elska þig í laumi.
Hvað getur maður annað sagt en GRÆNN GULLFISKUR!
mandag, mars 23, 2009
Grænn gullfiskur
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 10:40 |
onsdag, mars 11, 2009
Djé joð amma
Ég vissi að það var góð ákvörðun hjá mér að taka gylliboði Monitors og byrja að blogga á ný. Nú hafa þessir öðlingar boðið mér í partí með fríum veigum. Það kalla ég góðan díl enda er djamm snilld. Annars finnst mér fátt áhugaverða né skemmtilegra en djamm og þá aðallega sem ákveðið fyrirbæri. Í fyrsta lagi er orðið alveg hreint unaðslega skemmtilegt, leikur svoleiðis við tunguna á manni. Í öðru lagi þá er hegðun manna á djammi ætíð til mikillar eftirbreytni. Og í þriðja lagi þá er djamm einfaldlega schnilld.
Ég held að það væri stórkostlega skemmtilegt mannfræðiverkefni að grúska í þessu magnaða fyrirbæri. En þið lásuð það allavega fyrst hér: Djamm er snilld. (ég ætla reyndar að vona að lesendur mínir átti sig á því að ofnotkun mín á orðinu djamm er hér sett fram í kaldhæðnislegum tóni.... eða ekki... jú - ég er að grínast).
Annars er ég ekkert viss um að ég treysti mér einfaldlega út á lífið. Í bolta fyrir rúmlega viku síðan lenti ég nefnilega í því að það var sparkað í sköflunginn á mér og ég er enn að sálast í löppinni. Í fyrstu leit þetta út eins og lítið mar en síðan tók löppin að túttna út og er enn að í dag, mikil bólga og enn meiri sársauki. Læknarnir segja að...STOPP!STOPP!STOPP! Steinþór, þú veist að það er öllum sama um þitt leiðinlega daglega líf. Þú átt ekkert að vera að blogga um daginn og veginn. Ekki nema það sé eitthvað stuð-, fyllerís- eða klámtengt. Fólk vill bara lesa um typpi og píkur, um spekúlasjónir hvort Ásdís Rán hafi farið í varapumpingu eða ekki, um djamm, fallega og fræga fólkið og sjá fyndin vídjó. Þannig að skamm!
Okei, okei, sorry með mig. Ég skal hætt að blogga um leiðinlega tilveru mína. Ég lofa þér Monitor að vera skemmtilegri næst. Sjáumst bara í Monitorpartíinu á morgun, ég kem kannski aðeins of seint því mig langar að tjékka á Sinfó - þannig að ekki klára allt fría búsið...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 23:37 |
mandag, mars 09, 2009
Monitor sparkar mér aftur inn í bloggheiminn
Jæja, vegna gífurlegs þrýstings frá stjórnendum Mónitors og afar háttsettum mönnum í þjóðfélaginu, sem ég mun aldrei segja ykkur hverjir eru (enda ber ég við bankaleynd) hef ég ákveðið að endurvekja hið goðsagnakennda blogg steinthor.blogspot.com.
Síðasta færslan á þessari síðu birtist þann 24. október árið 2007 en það sem er hins vegar öllu skemmtilegra er að fyrsta færslan birtist á þessari síðu fyrir næstum því nákvæmlega sex árum síðan eða þann 12. mars á því herrans ári 2003. Færslan var eitthvað á þessa leið:
"Jæja þá er bloggið mitt loks komið á laggirnar. Núna getið þið hoppað hæð ykkar af gleði og byrjað að afklæðast. Það er náttúrulega ekki leiðinlegt. Ég vona bara að þetta verði skemmtilegt blogg og að einhverjar stelpur kíki inn á síðuna mína. En nú er bara málið að taka sér kiwi í hönd, klæða sig í föt frá því að ég var 7 ára og byrja að blogga. Þakka ykkur fyrir!"
Þarna var ég að verða átján, hafði bara sofið hjá tveimur stelpum (í dag er ég allavega búinn að tvöfalda þessa tölu, þannig að bloggið hefur greinilega verið öflugt hözztltól), Davíð Oddsson var enn forsætisráðherra, ég átti lítið meira en 100 geisladiska og ríkasti maðurinn á landinu var einhver kvótakóngur á Eskifirði sem fannst geðveikt töff að borga mestan skatt allra.
En núna, að áeggjan Mónitors, hefur þetta ágæta blogg verið endurvakið. Það er mikill heiður að vera innan um gæðalýð á borð við Ásdísi Rán, Magna í Á móti sól og Þorkel Mána. Ég þakka Mónitor kærlega fyrir þennan heiður.
Notar samt einhver blogspot í dag? Eru ekki allir á þessu moggabloggi, bloggar.is og einhverju kjaftæði. Ég er allavega einn af the originators og get státað af því að hafa bloggað jafn lengi og Egill Helga, Dr. Gunni og Björn Bjarna - eða svona allt að því.
Ég geri samt ráð fyrir því að allir, sem á annað borð hófu að lesa þennan póst, séu löngu hættir því enda er það víst sannað að athyglisspan nútímamannsins (og konunnar) er ca. 3 sekúndur. Þess vegna eru allir bara með statusupdeita á Facebook og Twitter; Tekur á því í ræktinni, Hvað er málið með stelpur?, Djöfull hata ég nýju Síma-auglýsinguna, Djamm er snilld osfrv.
Ég ætla hins vegar að berjast fyrir auknum gáfum hins venjulega lesanda steinthor.blogspot.com og Monitor.is.
Ég á samt örugglega eftir að vera mjög ryðgaður í kommbakkinu, allavega fyrst um sinn. Þarf líka að taka margt efni útaf síðunni sem væri óþægilegt að fólk kæmist í, verandi grunnskólakennari og umboðsmaður gáfulegrar poppsveitar og allt það. T.d. er þessi færsla frá 20. apríl 2003 ekki beint góð upp á mannorðið:
"Já já já já stemmingin r sk0o í hámarki. Já ég ersvo fullur. Ég elska landa, hann er yndislegur, ég elsks aykkur öll. Steini beini liggur í leini. Þetta bloggsmaband máþ................... Ég elska ykkur öll þvbí þið eruð öll yndilsel því ég er fullur. Jðon Bjarki þú ert svo fullorðinn. Fáðu þér bara rauðvín. Súsanna er víst bara í sumarbústað núna en þær stöllur (hún og selma) er sjúlar í að fá mig, en það er spurtning hvort ég hitti þær. OHH hvað ég er fuææuir, ég elska mig, ég er sekur um það að vera of kkynþokkafuælur, ég elska þa að apð.......... J´æon brynjar er samt að beila bara núna með kærustunni soinni. ég erlska ykkur öll. Kúlusúkk er sosalegqa gott, en nú ætla ´4eg að hæatta að blogga og byrja að drekka meira, ble ble ble.........."
Basic...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 22:32 |
onsdag, oktober 24, 2007
Ég er sigraður. Þess vegna hefur þetta blogg verið sett á hiatus, svona rétt eins og Sleater-Kinney...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 09:20 |
søndag, oktober 14, 2007
Skólaorðabók
Ég varð einfaldlega að láta vita af því að þetta blogg lifir enn. Og þar hafiði það, steinthor.blogspot.com lifir!
Ég var að koma af Magnúsar tónleikunum í Höllinni. Maggi karlinn hefur líklegast sjaldan verið eins svalur. Skil samt ekki afhverju þessi maður er ekki löngu búinn að drepast. Held að þetta læknaspítt sé að halda í honum lífinu...
Áður en ég keyrði heim kom ég við á Nesti við Hringbraut. Þar virðist vera að myndast ótrúlega merkileg menning um helgar. Ég þegar ég kom inn á bílaplanið voru þar sjö Fast 'n Furious bílar allir saman í röð og eigendurnar stóðu fyrir framan að ræða sín á milli. Reyndar voru þetta ekki svona Vin Diesel týpurnar, heldur meira bumbukallar í subbujökkum. Inni, hjá Subway og því, voru síðan fullt af gaurum-nýkomnirmeðbílprófið ásamt haug af fínbúnum grunnuskóla stúlkum. Þá er bara spurning um hvort maður eigi að smella sér á einn Civic GTI og byrja að tjékka á gellunum...?
Sýp nú á kaffi og er að undirbúaa mig fyrir lærdóm. Próf í inngangi að stjórnmálaheimspeki á mánudaginn. Stuð. Þess vegna er ástæða til að blogga. Húrra fyrir stuði, húrra fyrir prófum og húrra fyrir bloggi...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 00:31 |
søndag, september 23, 2007
Dump in the Dark
Nokkrar klassískar setningar frá Berlín:
- What Up Elijah Wood?
- Ef þú spilar ekki Þorparann næst þá drep ég þig.
- Blow my whistle bitch!
- Ég held að ég vilji bara frekar dansa
- Æi ég þurfti bara eneibla einhverju add onni.
- Ó mæ god!
- I think you should stay here with the handsome Icelandic guy.
- Hey! Hey! Spiel so wieder! Spiel so wieder!
- You're kind of cool hipster guy, are you sure you're Danish?
Annars kem ég heim annað kvöld...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 20:22 |
mandag, september 17, 2007
Berlín!!!
Er á leið til Berlínar, svaka stress í gangi, verð í viku, heyri í ykkur við fyrsta tækifæri...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 12:01 |
tirsdag, september 11, 2007
Síðasti veturinn
Æi, mikið ósköp var nú yndislegt að eyða einni hausthelgi í sumarbústað með litlu frændunum sínum. Golf, gláp, heitur pottur, fótbolti, sund og rigingarúði, ég get ekki beðið um meira. Mikið finnst mér líka alltaf fáránlega gaman að keyra Lyngdalsheiðina milli Þingvalla og Laugarvatns. Fyrir utan stórbrotið landslag er vegurinn fjörlegur í meira lagi. Umferðin þarna finnst mér samt alltaf vera að aukast. Einu sinni rústaði ég reyndar Golfinum mínum á þessari leið. Reyndar ekki á staðnum enda hefði verið frekar mikið sköll að vera fastur á heiðinni. Nei, á ljósunum við Gullinbrú gaf gírkassinn sig. Nei vitiði, við skulum frekar hafa það þannig að Grafarvogurinn hafi eyðilagt bílinn en ekki glæfraakstur minn á Lyngdalsheiðinni. Grafarvogurinn er jú ekki kallaður The Grave-Yard fyrir ekki neitt...
Nú vita flestir að ég er með frekar miki ofnæmi fyrir sumrinu. Ég fagna því yfirleitt mann mest þegar hitann tekur að lækka og það byrjar að rigna meirihluta sólarhringsins. Hins vegar er sá galli á gjöf Njarðar að varirnar á mér fara í fokk. Nú einmitt blæðir úr munnvikunum á mér sökum munnangurs og ég á erfitt með að tala vegna þess að annars meiði ég mig. OG það er BANNAÐ að láta mig fara að hlæja! Því er tilvalið að blogga...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 15:13 |
fredag, september 07, 2007
PlayStation
Er á leið út á land, nánar tiltekið á laugarvatn. Þar mun ég eyða helginni í haustsælunni, spila golf, slaka á í pottinum, spila, borða og leika mér. Heyri í ykkur eftir helgi...
Áðan töpuðum við í Hugvísindadeild fyrir Læknadeildinni í úrslitum spurningakeppni háskólanema. Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman að keppa í svona spurningarkeppnum. Að sama skapi er alltaf jafn djöfulegt að tapa. Líklegast það sem ég þoli hvað verst í lífinu...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 14:39 |
tirsdag, september 04, 2007
Lífsleikni
Jess, takmarki mínu hefur verið náð! Eftir áralangt strit, blóð, svita og tár, óendanlega margar ferðir í miðbæ Reykjavíkur, fáránlega föt, villt líferni og asnalega framkomu er ég loks kominn á þann stall sem ég tel mig eiga skilið. Reykjavík Looks getur hoppað upp í óæðra gatið sitt því ég, Steinþór Helgi Arnsteinsson, hef loks fengið mynd af mér inn á Pose.is...
Hér er ég ásamt Jónbímon...
Hér er líka Siggi sæti og Beta...
Og hér er ég, fáránlega nettur á kantinum!!!
Ég verð að viðurkenna að á þessari síðustu mynd er ég ekki að koma vel út...
(Og til þess að dreifa athyglinni) Djöfull erum við strákarnir að fíla 8-bíó. Færri í salnum og hættan á því að maður sofni eru töluvert meira hverfandi en þegar maður fer í 10-bíó. Og hvað þá þessi 1/2 11-bíó eða 4/5 11-bíó??? Þau totta frekar feitan. Held líka að tíminn milli svona hálf átta og tíu á kvöldin séu dauðasta tími sólarhringsins hjá mér, þá er heilinn á mér meira sofandi en þegar ég er í raun sofandi. Mér á þó allaveganna til að dreyma þegar ég sef. Þess vegna er frekar fín lausn að nota heiladoðan í bíógláp. Cocaine Cowboys áðan var hin bærilegasta skemmtun þrátt fyrir ægilega pirrandi tónlist sem í þokkabót var alltof há. Og nei, þetta þýðir ekki að ég sé orðinn of gamall. Pose myndirnir ættu nú heldur betur að afsanna slíkt...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 23:01 |
Einn dans við mig
Sigur Fjölnismanna í gær var einn sá glæsilegasti sem ég hef orðið vitni að. Stemningin á vellinum var ótrúleg. FC Kári á hrós skilið þó hann megi alveg vinna í betri söngtextum, helst einfaldari og meira grípandi. En hvað um það. Vonbrigðin við að þurfa að fara í útvarpið eftir venjulegan leiktíma voru gríðarleg en fögnuðurinn þeim mun meiri í litla stúdíóinu í Skaftahlíðinni þegar sigurmarkið kom. Ótrúleg stund. Áfram Fjölnir..!
Mér finnst það mjög skemmtileg staðreynd að símhringingin hans Hemma Gunn er Einn dans við mig sem hann sjálfur flytur...
Mér líkar helvíti vel við lífið þessa stundina...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 14:17 |
søndag, september 02, 2007
Eggjahvítumaski
Ég tók eftir því í teljaranum mínum að í síðustu viku fékk síðan um 500 heimsóknir á tveimur dögum, sem er afar óeðlilegt. Ástæðan fyrir þessu var sú að fullt af fólki hafði verið að gúggla Dabba Grensás og þar hafði síðan mín verið ofarlega á lista. Ástæðan er þessi færsla hér frá árinu 2003. Dabbi Grensás var þá nýbyrjarður í Borgó og í góðu geimi og mér fannst ég tilneyddur til þess að blogga um það...
Reyndar hef ég lengi tekið eftir því að reglulega kemur fólk inn á síðuna mína með því að gúggla Dabbi Grensás en hægt er að tjékka á slíkri umferð hér. Annað leitarorð sem er vinsæll segull inn á síðuna mína er Tinna Alavis enda er það ekki bara bráðfjörug staðreynd heldur einnig stórmerkileg að síðan mín kemur sem efsta leitarniðurstaðan þegar Tinna Alavis er gúggluð. Skemmtilegt...
Á morgun byrjar skólinn aftur. Ingangur að stjórnmálaheimspeki klukkan 10 í fyrramálið. Sumarbóhemlífið er því á enda. Því til staðfestingar verður farið í afvötnunaferð í sumarbústað með frændum mínum um næstu helgi. Þekkt sem hin árlega Frændaferð. Fifa, póker, golf, mikið af mat, heitur pottur og fótbolti verða einkunarorð ferðinnar. Svo er spurning um að skella sér til Berlínar og/eða Montreal á næstu vikum. Suður-Afríka gæti líka reynst ágætur staður til þess að eyða jólunum. Hvað segiði síðan um New York um áramótin..?
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 22:30 |
fredag, august 31, 2007
I Used to Dance Like a Gipsy
Telst lag ekki vera tímalaus klassík þegar maður er staddur á tónleikum og öðrum meginn við mann syngur mamma manns hástöfum með og hinum meginn er ungt par í massívum sleik? Þannig leið mér allavega þegar Sprengjuhöllin tók Verum í sambandi á Hamrahlíðartónleikunum í gær...
Ég veit að mörg ykkar muni ekki trúa þessu en ég er að spá í að minnka aðeins úr neu-rave brjálæðinu. Finnst þetta vera orðið of mikið meginstraums nú um stundir og ungdómur nútímans lætur boðskap hreyfingarinnar lönd og leið. Regnbogalitaður Steinþór verður því fátíður gestur um götur borgarinnar á næstunni. Engin Australia peysa eða skræpóttar leggings. Ekki samt halda að öllu verði hent úr skápnum. Nei, nei. Þetta verður eingöngu aðeins fágaðri neu-rave stíll...
Hef tekið eftir því að bankarnir eru í rosa námsmannaauglýsingaherferðarkeppni. Markmiðið er samt ekki að bjóða námsmönnum upp á bestu kjörin heldur að gera flottustu herferðina. Og eina sem stendur eftir eru brandararnir hans Jóhanns Alfreðs í Glitnis-auglýsingunum og þegar gellan lemur tengdamömmu sína í brúðkaupinu. Það er hins vegar lítill munur á kúk og skít þegar kemur að kjörunum. Verð þess vegna að fagna skrifum Kristínar Svövu í Fbl í dag...
Mér finnst Kristín Svava annars vera stórfenglegur Bakþankari, einn af þeim fáum sem ég les. Hún er alltaf á föstudögum með sína pistla eins og tónlistarpistlarnir mínir. Ég hef hingað til hins vegar reynt að haga því þannig, þar sem pistlar okkar birtast aðra hverja viku, að mínir pistlar birtist ekki á sama degi og hennar. Einfaldlega til þess að falla ekki í skugga hennar. Um daginn duttu tónlistarsíðurnar hins vegar út og allt fokkaðist upp. Nú stend ég annan hvern föstudag hágrátandi, með lítið typpi og bullandi minnimáttarkennd því að pistlar okkar birtast á sama tíma...
Annars erum við Kristín Svava, ásamt Ásgeiri Berg MA-ingi, að fara að taka þátt í spurningakeppni Háskólans í næstu viku fyrir hönd Hugvísindadeildar. Þið getið vart ímyndað ykkur hvað mig klæjar mikið í fingurna að fá að taka aftur þátt í spurningakeppni. Og að sjálfsögðu geri ég þá kröfu til minna manna að sigri verði landað...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 10:36 |
torsdag, august 30, 2007
Tjibb Schammel Akmed
Eftir dramtískt síðasta blogg, þar sem fólk hringdi í mig til þess að athuga hvort ég væri ekki örugglega heill á húfi, held ég að ég skuldi ykkur smá útskýringar...
Tallinn= Var staddur í Tallinn, þar sem ég ferðaðist með sveitinni Reykjavík! og Herði Sveinssyni, ljósmyndara á Fréttablaðinu, en Rvk! voru að spila á tónleikum þarna.
Madonna i kareoki= Á skemmtiferðaskipinu milli Tallinnar og Helsinki var brjálað partí og allir Finnarnir blindfullir í kareókí. Ég mátti ekki minni maður vera og tók Music með Madonnu. Eftir sjóvið kom að mér Finni og sagði: "You are the worst singer I have ever seen. But your show was great!"
Simi tyndur= Glataðist á dramtískan hátt. Fæ mér líklegast nýja síma aftur í dag, þannig að þið megið endilega byrja að hringja í mig aftur.
Fangelsi= Tónleikarnir sem Reykjavík! spiluðu á voru samnorrænir tónleikar á vegum skandinavísku sendiráðanna til styrktar AIDS/HIV baráttunni í Eistlandi. Þeir fóru fram í gömlu Stalín fangelsi sem var hrikalegt ásýndar en frábær tónleikastaður. Ég skeit líka þar. Sjá hér.
Bi-sexual= Virtist vera einhver pikkupplína hjá eistneskum stelpum að segja að þær væru bi-sexual.
Tónleikar= Búinn að koma inn á þá.
Skemmtiferdaskip= Skemmtiferðaskipið líka. Má reyndar einnig nefna að í skipinu var líka stórt dansgólf þar sem sveit (nei, sveit, ekki Suede) spilaði fyrir dansi og jafnvel á heimleiðinni, sem var um miðjan dag á sunnudegi, þá var dansgólfið pakkað af fólki í góðu glensi.
Kokteilbod= Fórum í semi-fínt kokteilboð í einhverju norrænu húsi í Helsinki.
Týnd myndavél= Glataðist líka á mjög dramatískan hátt.
Kafa a brjostum=
Held að ég þurfi að útskýra þessa mynd aðeins frekar. Þetta eru þær Lea (takið sérstaklega eftir prófíllaginu hennar, metallagið Whore Filthy Whore) og Veronica (Haukur úr Rvk! tókst á einhvern stórfurðulegan hátt að finna MySpace-ið þeirra). Við hittum þær úti á götum Tallinnar en V er að læra norræn tungumál í háskólanum í Tallinn. Ég og Hörður þurftum að fara upp á hótel að skila af okkur dóti og þær komu með. Þegar þangað var komið var boðið upp á bjór og Hörður spurði hvort hann mætti ekki taka mynd af okkur. Sjálfsagt, sögðu stúlkurnar og byrjuðu strax að káfa á brjóstunum á hvor annarri. Ég, náttúrulega eins og asni þarna fyrir aftan, ákvað að gera það eina skynsamlega í stöðunni, að ulla. Síðan fórum við bara út á lífið og þar við stóð.
Cobra= Fór á indverskan veitingastað í mikilli þynnku og fannst það sniðugt að fá mér Cobra-öl. Eftir tvo sopa hugsaði ég með mér: Cobra was a bad idea.
Spennitreyja= Í fangelsinu í Tallinn fundu við skemmtilegt spennutreyjulistaverk. Ég lét taka æsilegar myndir af mér í spennitreyjunni en þær eru nú glataðir, eins og myndavélin.
Helsinki= Fórum til Helsinki. Flott borg, langar þangað aftur.
Sendiherra= Hittum íslenska sendiherrann í Helsinki og vorum keyrðir um allt í Helsinki á sendiherrabílnum. Geggjað kúl.
Rosaleg brotlending= aka brjáluð þynnka.
Þar hafiði það, þetta var semsagt ekkert svo spennandi eftir allt saman...
Hey, drullið ykkur inn á radiofrank.blogspot.com. Nú er allt að verða vitlaust þar. Loksins, segja líklegast margir og ég tek undir þau orð...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 10:04 |
søndag, august 26, 2007
Kasutajatunnused
Tallinn, Madonna i kareoki, simi tyndur, fangelsi, bi-sexual, tonleikar, skemmtiferdaskip, kokteilbod, tynd myndavel, kafa a brjostum, Cobra, spennitreyja, Helsinki, sendiherra, rosaleg brotlending...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 12:45 |
torsdag, august 23, 2007
Arca Angels
Hef verið duglegur við að hjóla undanfarið. Aðallega samt bara í vinnuna en samt líka niður í bæ og hingað og þangað. Aðallega samt bara vinnuna. Hjólið sem ég er á fékk ég frá Helgu, elstu systur hennar mömmu, þar sem fermingarhjólinu mínu var stolið í vor. Hjólið hennar Helgu er kvenkyns, ekkert svakalega flott, en samt með 24 gírum og körfu að framan sem mér þykir nokkuð töff. Aðalgalli hjólsins er hins vegar smæð þess. Þannig get ég ekki stillt hnakkinn það hátt að ég geti haft leggina mína nokkurn veginn beina þegar þeir eru í neðstu stöðu. Það reynir gríðarlega á mann en í staðinn hafa lærvöðvarnir tekið að stinnast, vissulega stór ljósbjarmi í myrkrinu...
Áðan, er ég var á leiðinni út í vinnuna, gekk ég út, snarstansaði og sá að það var hellidemba úti. Ég stóð í ca tvær sekúndur, og hugsaði, nei þetta þoli ég ekki, og labbaði aftur inn. Nú sit ég fyrir framan tölvuna, blogga, ráfa um netið og úti er sólskin. Ísland, ótrúlegt...
Fyndið að frá því að ég var 12. ára gamall og allt til að ég varð 21. árs ætlaði ég mér ekkert annað í lífinu en að verða læknir, helst lýtalæknir, jafnvel þegar ég var 12. ára og vissi ekki einu sinni hvað það var. Einn húðlæknir hafði bara sagt við mig að ef ég ætlaði mér að verða læknir þá gæti ég pottþétt ekki orðið skurðlæknir vegna viðkvæmrar húðar. Lýtalæknir væri því tilvalið starf fyrir mig og ég tók þennan ágæta húðlækni á orðinu. Í dag er ég 23. ára (VÁ!!!!) og síðasta sem ég gæti hugsað mér væri að taka lækninn, og hvað þá lýtalækninn. Nei, þann 3. september næstkomandi held ég áfram í heimspekinámi mínu. Menningarfræði verður síðan höfð með sem aukagrein...
Á morgun fer ég til Helsinki og samdægurs sigli ég með bát yfir til Tallinnar, höfuðborgar Eistlands. Þar mun ég sækja samnorræna tónleika á vegum norrænu sendiráðanna í gömlu fanglesi til styrktar HIV-baráttunni í Eystrasaltslöndunum. Merkilegt...
Fyndið samt að ég hafi fagnað því fyrir stuttu að fá frí frá Reykjavík tvær helgar í röð þegar akkúrat þessar tvær helgar hef ég verið að ferðast með hljómsveitinni Reykjavík! Kældhæðni örlaganna er lúmskur og lævís andskoti...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 08:55 |
lørdag, august 18, 2007
Früh
Enn staddur í Köln en ég og Haukur fljúgum heim aftur á morgun, sunnudag. Köln hefur komið mér svolítið á óvart, frekar flott borg, þægilegt andrúmsloft, góð borgarmiðja, mikið af fínum búðum og allir í góðu glennsi. Fílaða...
Eftir nokkuð margar heimsóknir til Þýskalands hef ég komist að því að það eru til fleiri skrýtnir Þjóðverjar en venjulegir. Afar merkileg staðreynd...
Eins og í öllum öðrum þýskum borgum sem ég hef heimsótt er miðbærinn afar sterkur. Mikið af fínum kaffihúsum og veitingastöðum. Eina sem vantar eru fleiri kebabstaður, sem eru, því miður, af afar skornum skammti. Þetta fylgir víst bara Vestur-Þýskalandi. Aftur á móti er bjórinn mjög góður...
Hér er líka mikið af H&M, eins og reyndar í flest öllum öðrum stórborgum. Alltaf hugsaður maður samt: Djöfull, nú ætla ég ekkert að versla í þessari helvítis verslun, það enda hvort sem er allir heima í nákvæmlega eins fötum og þú! Samt verzlar maður alltaf mest í þessari búð...
Hér er líka United Colors of Benetton aka Sameinuðu litirnir af Benetton. Þeir eru samt bara með eina verslun. Sem er gott, því þeir eru svo sameinaðir. Annars væru hérna búðir eins og Blái liturinn af Benetton, Rauðir liturinn af Benotton o.s.frv. Hahahahaha...
Ég keypti mér ferðageislaspilara áðan, sem er svosem ekki frásögu færandi. Ég ætlaði samt að kaupa hann fyrst í Fríhöfninni en þar var hann einfaldlega ekki til. Merkilegt fannst mér. Svo, eftir ítarlega leit, fann ég loks Mega-BT/Elko/Max verslun sem heitir Saturn. Verslunun var á þremur hæðum og seldi allt milli himins og jarðar. Samt fann ég eingöngu fimm gerðir af ferðageislaspilurum. Til samanburður fann ég um 60 gerðir af USB-lyklum. Ég veit ekki hvort að það er ég sem er svona ótöff eða Saturn...
Þýska súkkalaðið Ritter Sport er án efa það besta sem völ er á í dag. Sérstaklega mæli ég með Coconut Ritter, fáránlega gott. Allir Ritter súkkulaðibitarnir eru sérstaklega góðir með súkkulaði, nei, ég meina rauðvíni...
Jæja, sé ykkur á Ísa-landinu góða...
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 18:18 |
onsdag, august 15, 2007
Heimat des Fussballs
Kominn til Þýskalands þar sem Köln faðmar okkur í íslenska hópnum. Allir eru agndofa yfir þessu flotta hóteli okkar og maður getur ekki annað sagt en að hér líði manni vel...
Í gær var kíkt á Kölnardómkirkjuna og í sushi en ég sofnaði síðan rétt um klukkan 9 í gærkvöldi enda alveg búinn á því eftir um þriggja tíma svefna nóttina áður og meðtalinn er svefninn í flugvélinni. Í morgun vaknaði maður hins vegar galvaskur klukkan níu, baðaði sig og mætti síðan í bragðgóðan morgunmat, þar sem þernurnar eru það snobbaðar að þær leyfa manni ekki einu sinni að drekka kaffið sitt úr tebolla. Nú er hins vegar stefnan sett á göngutúr um Köln sem virðist heví næs borg...
Eitt af því skemmtilegasta við Þýskaland er að fara á venjulega netrúntinn sinn og komast að því að allt breytist yfir á þýsku. Þannig fer maður að framkvæma aðgerðir á myspace eins og Antworten, freundanfragen, account einstellungen, anschauen og Benutzer sperren. Í svipuðum dúr eru aðgerðirnar á Blogger. Sem betur fer er maður nú stúdent í þýsku og leysir þetta allt saman með annarri. Fékk meira að segja 7 í þýsku 403. Hvað þýðir samt þetta stürmen Sturme..?
Skrifaði Steinþór Helgi klukkan 11:36 |

